Loksins farið að hlýna í Sviss og sást það best í dag þegar ég var að labba úr búðinni og framúr mér labbaði kona sem sneri sér við og benti mér á að vorið væri komið, þegar ég leit í áttina sem hún benti sá ég að það voru bleik blóm sprungin út á nokkrum trjám...yndislegt alveg hreint. Sátum reyndar úti á svölum eftir hádegi í gær líka þegar Sirrý kom í heimsókn í sveitina...það sem ég hlakka mikið til sumarsins!!!
Erum annars líklegast búin að leysa barnapössunarmál í Maí með því að það kemur 18 ára stelpa frá Íslandi og verður hérna í 5 vikur...Erla ákvað að fara mánuði fyrr eða 1.maí og varð því að redda málunum á einn eða annan hátt. Ég stefni a.m.k. á að vera í 100% vinnu alveg fram að mánaðarmótum maí/júní en þá væri ég líka alveg til í að hætta bara og dúllast með Kristófer

Heilsan alla veganna með afbrigðum góð og vonandi að það haldist bara áfram. Nóg að gera í vinnunni en nýja samstarfskonan byrjaði fyrir rúmri viku síðan, nóg að kenna henni og sýna og okkur kemur mjög vel saman sem er langt í frá að vera sjálfsagður hlutur vil ég meina en óneitanlega mikill kostur. Verð annars oft agndofa í vinnunni yfir mörgum af þessum ungu krökkum sem tala frá fjórum og upp í sex tungumál reiprennandi, alveg magnað og gaman að spjalla við svona klára krakka.
Er ein heima í kvöld, jah með Kristófer sem er farinn að sofa, og ég bara man ekki hvenær það gerðist síðast...heilt kvöld framundan þar sem ég get t.d. legið upp í sófa og horft á nákvæmlega það sem mig langar til án þess að e-r skipti sér af

Afar ljúft...Gummi er að elda í veislu í Lausanne en hann fékk símtal í gær frá konu sem hann þekkir og hefur áður eldað fyrir heima hjá henni...fólk sem á nóg af peningum og Gummi getur því bara sett það verð upp sem hann vill fá og það er samþykkt. Gaman að vera beðinn um svona...ekki síst þegar hann (við) erum flutt úr borginni í sveitinni

Einmitt rúmt ár um þessar mundir síðan að við fluttum í sveitina, sjáum ekki eftir því...langt í frá. Yndislegt að vera hérna í Collombey þó svo að það sé alveg magnað hvað það er oft langt t.d. frá Lausanne til Collombey en stutt í hina áttina

En þetta kannast maður svo sem við frá því að vera að norðan þar sem er alltaf svo langt frá Reykjavík til Akureyrar en mun styttra í hina áttina!
Óskar frændi er annars á leið í heimsókn núna í byrjun apríl, fyrsta heimsóknin bókuð á þessu ári...mamma og pabbi Gumma koma svo um miðjan júlí en annað er ekki frágengið en auðvitað væri gaman að sjá sem flesta

Ætli við reynum svo ekki að skjótast heim um jólin 2010 og náum vonandi tveimur vikum...eins gott að fara að panta tíma þeir sem vilja sjá okkur hahahahah

En sumarið er sem sagt á allra næsta leyti og ekki laust við að þetta sumar verði þó nokkuð mikið öðruvísi heldur en þau síðustu. Mikil tilhlökkun hjá okkur eins og gefur að skilja en settur dagur er 19.júní, a.m.k. vona ég að það standist. Fór nefnilega í sérstaka skoðun á sjúkrahúsinu í þar síðustu viku þar sem læknirinn vildi meina að ég ætti frekar að vera sett 6. júní...já myndi örlítið breyta stöðunni

En fer í skoðun hjá mínum lækni á mánudaginn og bið hana þá um að endur-staðfesta 19.júní! Gummi fer einmitt í sumarfrí 19.júní svo það myndi hitta vel á að hann gæti þá náð tveimur vikum með okkur heima. En þetta kemur víst allt í ljós þegar líður tekur á...
Alltaf gaman að sjá hverjir fylgjast með mér hérna og segi ég því bara takk fyrir að nenna að fylgjast með...eitt er alla veganna víst og það er að ég er ekki duglegast bloggarinn á svæðinu

Bestu kveðjur til allra nær og fjær úr vorblíðunni í Sviss!